Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
30

Ólympíustöðin sýnir frá íþróttaviðburðum

04.07.2017

Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum, er með nýjustu fréttir og býður upp á útsendingar tileinkaða íþróttum og íþróttamönnum allt árið um kring. Stöðin leggur áherslu á afreksíþróttamenn og þeirra leið að meiri árangri.

Á Ólympíustöðinni geta notendur upplifað kraft íþróttanna og Ólympíuhreyfingarinnar allt árið, hvar sem er og hvenær sem er. 

Hægt er að horfa á Ólympíustöðina á vefsíðu Olympic Channel. Íþróttamenn og aðdáendur geta einnig fylgt Ólympíustöðinni á samfélagsmiðlasíðum hennar, FacebookInstagramTwitter og YouTube.

Hér má sjá næstu viðburði sem hægt er að fylgjast með.