GSSE 2017: Lokahátíð Smáþjóðaleikanna í kvöld
03.06.2017
Keppni á Smáþjóðaleikunum 2017 í San Marínó lauk í dag. Lokahátíðin fór fram í kvöld og Hrafnhildur Lúthersdóttir var fánaberi fyrir hönd Íslands.
Lokahátíðin var nokkuð á eftir áætlun þar sem keppni í blaki dróst á langinn auk þess sem margt íþróttafólk var í lyfjaprófi langt fram eftir. Lokahátíðin fór fram við hlið frjálsíþróttavallarins, en þar voru langborð með veitingum fyrir mörg hundruð manns.
Ísland hafnaði í 3. sæti á verðlaunatöflunni með 60 verðlaun, þar af 27 gullverðlaun. Lúxemborg trónir á toppi töflunnar með 97 verðlaun, þarf af 37 gull. Kýpur var í 2. sæti með 83 verðlaun, þar af 30 gull.
Íslenskir þátttakendur fara heim í nótt og á morgun.
Næstu Smáþjóðaleikar fara fram í Svartfjallalandi árið 2019.