GSSE 2017: Sundfólkið með fleiri verðlaun
Íslenskt sundfólk fékk fleiri verðlaun í dag.
Eygló Ósk Gústafsdóttir sigraði í 100 m baksundi í dag á tímanum 1:01,67 mín. Hún hlaut þar með önnur gullverðlaun sín á Smáþjóðaleikunum, en hún vann til gullverðlauna í 200 m baksundi í gær.
Hrafnhildur Lúthersdóttir vann gullverðlaun í 200 m bringusundi á tímanum 2:28,89 mín. Karen Mist Arngeirsdóttir varð í 5. sæti á tímanum 2:39,39 mín. Hrafnhildur hlaut þar með önnur gullverðlaun sín, en hún vann til gullverðlauna í 200 metra fjórsundi í gær.
Bryndís Rún Hansen sigraði í 100 m flugsundi á tímanum 1:01,57 mín. Inga Elín Cryer varð í 5. sæti á tímanum 1:03,94 mín. Bryndís Rún vann sín önnur gullverðlaun í dag, en hún vann einnig í 100 m skriðsundi í gær.
Í 100 m baksundi karla vann Davíð Hildiberg Aðalsteinsson til bronsverðlauna á tímanum 57,50 sek. Kristinn Þórarinsson varð sjötti á 58,56 sek.
Ágúst Júlíusson vann til bronsverðlauna í 100 m flugsundi á tímanum 55:67 sek. Í 200 m bringusundi vann Viktor Máni Vilbergsson til bronsverðlauna á tímanum 2:17,21 mín.
Sunneva Dögg Friðriksdóttir hafnaði í 5. sæti í 400 m skriðsundi á tímanum 4:27,66 mín. Bryndís Bolladóttir var á 4:30,88 mín.
Þröstur Bjarnason hafnaði í 5. sæti í 400 m skriðsundi á tímanum 4:08,00 mín. Hafþór Jón Sigurðsson var á 4:10,79 mínútum.
Íslenska sveitin í 4x200 m skriðsundi kvenna vann til gullverðlauna á tímanum 8:21,13 mín. Í sveitinni eru Hrafnhildur Lúthersdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sunneva Dögg Friðriksdóttir og Bryndís Rún Hansen.Íslenska sveitin í 4x200 m skriðsundi karla vann til silfurverðlauna á tímanum 7:46,34 mín. Í sveitinni eru Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Aron Örn Stefánsson, Kristófer Sigurðsson og Þröstur Bjarnason.