Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.01.2026 - 21.01.2026

RIG ráðstefna

Í tengslum við RIG þá verður ráðstefna um...
22

Dímon fyrirmyndarfélag ÍSÍ

01.03.2017

Íþróttafélagið Dímon á Hvolsvelli fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag á aðalfundi félagsins sem haldinn var á Hvolsvelli 26. febrúar síðastliðinn. Alls hlutu sex af sjö deildum félagsins viðurkenninguna að þessu sinni og stefnt er að viðurkenningu fyrir þá sjöundu fljótlega. Deildirnar sex hafa þessu viðurkenningu í fjögur ár og þurfa þá að sækja um endurnýjun hennar til ÍSÍ.

Það var Jón Finnbogason úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og jafnframt í stjórn Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti forystumönnum deildanna viðurkenningarnar auk fána fyrirmyndarfélaga. Íþróttafélagið Dímon er sjöunda félagið innan HSK sem fær þessa viðurkenningu. Á myndinni er Jón (lengst til vinstri) ásamt forystumönnum félagsins og ungum iðkendum sem halda á fána fyrirmyndarfélaga.