Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ heiðrað í kvöld – Bein útsending

29.12.2016

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Samtök íþróttafréttamanna halda sameiginlegt hóf í tengslum við kjör Íþróttamanns ársins 2016. Hófið verður haldið í kvöld, þann 29. desember, í Hörpu og hefst kl. 18:00.
Dagskráin samanstendur af afhendingu viðurkenninga ÍSÍ til íþróttamanna og íþróttakvenna sérgreina íþrótta og kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2016.

ÍSÍ vekur athygli á því að afhending viðurkenninga íþróttafólks sérsambanda fer fram í beinni útsendingu á RÚV2 frá kl. 18:00. Bein útsending frá kjöri íþróttamanns ársins fer fram frá kl. 19:40 á RÚV.

Íþróttafólk sérsambanda fyrri ára má sjá hér á vefsíðu ÍSÍ og fyrrum íþróttamenn ársins má sjá á vefsíðu Samtaka íþróttafréttamanna.

Tveir einstaklingar verða útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ. Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar. Með þessu verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra helstu afrekum.


Listi yfir íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ 2016 birtist á vefsíðu ÍSÍ í kvöld.

Myndir af íþróttafólki sérsambanda, ásamt öðrum myndum frá hófinu, má sjá á myndasíðu ÍSÍ í kvöld.