Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26

Framhaldsskólanemar í heimsókn

10.11.2016

Í vikunni kom hópur nema í íþróttafræðiáfanga í FG í heimsókn til ÍSÍ til að fræðast um uppbyggingu ÍSÍ og helstu viðfangsefni sem starfsmenn skrifstofunnar eru að vinna að.

Talsverð umræða var um lyfjaeftirlit, lyfjamál og fæðubótarefni, en nemarnir fengu líka kynningu á Ólympíuhreyfingunni og verkefninu Sýnum karakter.

Talsvert er um að skólahópar komi í heimsókn og fái kynningu á starfsemi ÍSÍ.