Ríó 2016 - Komið að lokum leikanna
19.08.2016Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona, verður fánaberi Íslands á lokahátíð Ólympíuleikanna 2016. Hrafnhildur er fyrsta íslenska konan sem kemst í undanúrslit á Ólympíuleikum í sundi í tvígang og sú fyrsta til að komast í úrslitasund á Ólympíuleikum þegar hún tryggði sér sjötta sætið í 100 metra bringusundi. Með lokahátíðinni lýkur íþróttaveislu sem staðið hefur síðan að leikarnir voru settir þann 5. ágúst sl.
Ísland átti að þessu sinni keppendur í 4 íþróttagreinum og voru þeir 8 talsins. Íslandsmet féllu, sigrar unnust, og almennt séð stóðu okkar keppendur sig glæsilega á þessum stóra viðburði.
Hluti hópsins hefur nú þegar yfirgefið Ríó en þeir sem eftir eru fara flestir með flugi á morgun.