Ríó - 2016 Samantekt
Íslenskir þátttakendur á Ólympíuleikunum í Ríó hafa nú allir lokið keppni. Hér má sjá samantekt um árangur þeirra á leikunum.
Anton Sveinn McKee sundmaður keppti fyrstur Íslendinga þann 6. ágúst í 100m bringusundi. Hann synti á 1:01,84 mínútum, hafnaði í 35. sæti og komst því ekki áfram í undanúrslit. Anton hefði þurft að setja Íslandsmet og synda á 1:00,25 sekúndum til að ná inn í undanúrslitin, en Íslandsmet hans er 1:00,53. Anton keppti síðan í 200 metra bringusundi þann 9. ágúst. Hann synti á tímanum 2:11,39 mínútum, en það er rúmri sekúndu frá Íslandsmeti hans, 2:10,21 mínútur. Árangur hans tryggði honum 18. sætið, en 16 sundmenn komust áfram í undanúrslitin. Anton var mjög nálægt því að komast áfram, eða 13/100 úr sekúndu. Anton lauk þar með keppni á leikunum.
Eygló Ósk Gústafsdóttir synti þann 7. ágúst í undanriðlum 100 metra baksunds á tímanum 1:00,89. Tíminn var sá sextándi besti og varð Eygló því fyrsta íslenska konan til að tryggja sig inn í milliriðla á Ólympíuleikum í sundi. Eygló synti síðan undanúrslitasundið í 100 m baksundi á tímanum 1:00,65 sem var fjórtándi besti tíminn. Eygló var nálægt sínum besta árangri sem er 1:00,25. Þar með lauk Eygló keppni í 100 m baksundi. Eygló synti sig síðan inn í úrslit 200 metra baksunds þann 12. ágúst, en hún náði sjöunda besta tímanum 2:08,84 í undanúrslitunum. Er það bæting á hennar besta árangri og um leið Íslands- og Norðurlandamet í greininni. Í úrslitasundinu hafnaði Eygló í 8. sæti eftir að hafa synt á 2:09,44 mínútum. Eygló er þriðji Íslendingurinn í sögunni sem syndir til úrslita á Ólympíuleikum. Þar með lauk Eygló keppni á leikunum.
Hrafnhildur Lúthersdóttir synti í undanriðlum í 100 metra bringusundi þann 7. ágúst á tímanum 1:06,81 sem var níundi besti tíminn í undanriðlunum. Í undanúrslitum 100 metra bringusundsins þann 8. ágúst náði Hrafnhildur sjöunda besta tímanum þegar hún synti á 1:06,71 og tryggði sér með því sæti í úrslitasundinu. Hrafnhildur náði síðan 6. sæti í úrslitasundinu, á tímanum 1:07,18 mínútum sem er 73/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti hennar, sem er 1:06,45. Bandaríska sundkonan Lilly King varð Ólympíumeistari, en hún synti á 1:04,93 mínútu og setti þar með Ólympíumet. Árangur Hrafnhildar er besti árangur íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum, en næstbesti árangur sem Íslendingur hefur náð í sundi á Ólympíuleikum þar sem Örn Arnarson náði 4. sæti í 200 metra baksundi í Sydney árið 2000. Hrafnhildur synti síðan í undanriðlum í 200 metra bringusundi þann 10. ágúst á tímanum 2:24,43 mínútum og tryggði sig inn í undanúrslitin. Í undanúrslitum 200 metra bringusundsins synti Hrafnhildur á 2:24,41 mínútu og varð í 5. sæti í sínum riðli. Hún komst ekki áfram í úrslit, en varð í 11. sæti alls. Hrafnhildur er fyrsta íslenska konan sem kemst í undanúrslit á Ólympíuleikum í sundi í tvígang og sú fyrsta til að komast í úrslitasund á Ólympíuleikum þegar hún tryggði sér sjötta sætið í 100 metra bringusundi.
Irina Sazonova keppti í áhaldafimleikum kvenna þann 7. ágúst. Með þátttöku sinni braut Irina blað í sögu fimleika á Íslandi þegar hún varð fyrsta íslenska konan til að taka þátt á Ólympíuleikum. Í keppninni náði Irina samtals 53,200 stigum og varð með árangri sínum í 41. sæti. 24 efstu keppa til úrslita í fjölþrautinni.
Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason keppti í kringlukasti þann 12. ágúst og kastaði fyrst 53.51 m, næst 60.45 m og síðasta kast var 59.37 m. Hann endaði í 21. sæti keppninnar af 35 þátttakendum. Besta árangri sínum til þessa náði Guðni Valur í Hafnarfirði þann 10. september 2015 þegar hann kastaði 63.50 metra. Síðastur inn í úrslitin, sá sem varð í 12. sæti í undankeppninni, kastaði kringlunni 62.68 metra.
Þormóður Árni Jónsson keppti í +100 kg flokki í júdó þann 12. ágúst. Hann mætti Maciej Sarnacki frá Póllandi í fyrstu glímu, í 32 manna úrslitum, og tapaði. Sarnacki er pólskur meistari og er í 23. sæti á heimslistanum, en Þormóður í 65. sæti. Glíman var jöfn og mjög spennandi, en Þormóður tapaði að lokum á sóknarvillum. Báðir höfðu þeir fengið þrjár villur fyrir að sækja ekki nógu mikið og Þormóður tapaði síðan þegar hann fékk fjórðu villuna. Ólympíuleikarnir í Ríó eru þriðju leikar Þormóðar Árna í röð. Hann komst í 16 manna úrslit á sínum fyrstu leikum, árið 2008, en féll út gegn Brasilíumanninum sterka Rafael Silva í fyrstu glímu í London 2012.
Ásdís Hjálmsdóttir keppti í spjótkasti þann 16. ágúst og komst ekki áfram í úrslit. Fyrsta og þriðja kastið hennar voru dæmt ógild, en annað kastið hennar var 54.92 metrar. Hennar lengsta kast á árinu er 61.37 metrar og Íslandsmetið 62.77 metrar. Ásdís hafnaði í 30. sæti af 31 keppanda.
Aníta Hinriksdóttir virtist njóta sín vel á sínum fyrstu Ólympíuleikum þegar hún hljóp í undanrásum 800 metra hlaups þann 17. ágúst. Hún bætti þriggja ára gamalt Íslandsmet sitt um 35 sekúndubrot með því að hlaupa á 2:00,14 mínútum. Það var 20. besti tíminn í undanrásunum en dugði þó ekki til að koma Anítu í 24 manna undanúrslitin. Ástæðan er sú að aðeins tveir fyrstu keppendur í hverjum riðli af átta komust áfram, auk átta keppenda til viðbótar sem náðu bestum tíma þar fyrir utan. Keppendur í riðli Anítu hlupu hraðast allra og varð hún í 6. sæti í honum. Ef horft er á tíma þeirra sem ekki lentu í 1. eða 2. sæti í sínum riðli átti Aníta 10. besta tímann af þeim, og var aðeins tveimur sætum frá því að komast í undanúrslit, eða 14/100 úr sekúndu. Fimm fyrstu í hennar riðli komust áfram.