Ríó 2016 - Íslandsmet hjá Anítu
Aníta Hinriksdóttir keppti í dag í undanrásum 800 metra hlaups á Ólympíuleikunum í Ríó. Aníta setti Íslandsmet með því að hlaupa á 2:00,14 mínútum, en hún varð í sjötta sæti í sínum riðli. Íslandsmet Anítu frá árinu 2013 var 2:00,49 mínútur. Aníta var fyrirfram í 46. sæti af 65 keppendum.
Keppt er í átta riðlum í undanrásum. Tveir fyrstu keppendur í hverjum riðli komast áfram í undanúrslit. Að auki komast þeir átta keppendur sem ná bestum tíma, án þess að enda í 1. eða 2. sæti síns riðils, áfram í undanúrslitin. Samtals hlaupa 24 keppendur í þremur riðlum í undanúrslitunum, sem fara fram annað kvöld.
Íslandsmetið dugði ekki til að komast áfram í undanúrslit. Aníta Hinriksdóttir hefur því lokið keppni í Ríó. Við óskum Anítu innilega til hamingju með frábært hlaup og Íslandsmetið.