Ríó 2016 - Þormóður úr leik
12.08.2016
Þormóður Árni Jónsson keppti í dag í +100 kg flokki í júdó á Ólympíuleikunum í Ríó. Hann mætti Maciej Sarnacki frá Póllandi í fyrstu glímu, í 32 manna úrslitum, og tapaði. Sarnacki er pólskur meistari og er í 23. sæti á heimslistanum, en Þormóður í 65. sæti.
Glíman var jöfn og mjög spennandi, en Þormóður tapaði að lokum á sóknarvillum. Báðir höfðu þeir fengið þrjár villur fyrir að sækja ekki nógu mikið og Þormóður tapaði síðan þegar hann fékk fjórðu villuna.
Ólympíuleikarnir í Ríó eru þriðju leikar Þormóðar Árna í röð. Hann komst í 16 manna úrslit á sínum fyrstu leikum, árið 2008, en féll út gegn Brasilíumanninum sterka Rafael Silva í fyrstu glímu í London 2012.