Ríó 2016 - Eygló keppir í 200 metra baksundi í dag
11.08.2016
Undanriðlar í 200 metra baksundi kvenna hefjast kl. 14.36 (17.36 að íslenskum tíma) í dag.
Eygló Ósk Gústafsdóttir syndir á annarri braut í fjórða og síðasta riðlinum. Undanúrslit í greininni fara svo fram uppúr kl. 22.30 í kvöld að brasilískum tíma (01:30 að íslenskum tíma).
Á myndinni sem fylgir má sjá Eygló í ræsingu 100 metra baksundsins fyrr í vikunni.