Vorannarfjarnámi í þjálfaramenntun ÍSÍ lokið
Vorannarfjarnámi ÍSÍ á 1. og 2. stigi þjálfaramenntunarinnar er nú lokið. 24 nemendur luku námi á 1. stigi og 17 nemendur á 2. stigi þessa önnina. Nemendur koma frá fjölmörgum íþróttagreinum og eru búsettir víða um land. Sérgreinaþátt námsins taka nemendur svo hjá sérsamböndum ÍSÍ. Þeir sem luku námi á 1. stigi fá þjálfaraskírteini send á heimilisfang en nemendur sem luku 2. stigi þurfa að koma með eða senda skírteinið sitt á ÍSÍ til að fá staðfestinguna á 2. stigi sett inn á skírteinið sitt sem þeir væntanlega fengu að 1. stigi loknu. Þeir nemendur þurfa að hafa lokið 6 mánaða starfi sem þjálfarar og að hafa gilt skyndihjálparnámskeið. Hvorttveggja verður að vera staðfest á þjálfaraskírteininu. Næsta fjarnám ÍSÍ verður á sumarönn 2016 og hefst í júní.
Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri á vidar@isi.is og í síma 514-4000 & 863-1399.