Júdódeild UMF Selfoss fyrirmyndardeild ÍSÍ
18.04.2016Júdódeild Ungmennafélags Selfoss fékk endurnýjun á viðurkenningu sem fyrirmyndardeild ÍSÍ á aðalfundi félagsins á Selfossi fimmtudaginn 14. apríl síðastliðinn. Það var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og jafnframt formaður Almenningsíþróttasviðs sem afhenti deildinni viðurkenninguna í upphafi aðalfundarins. Allar deildir félagsins eru fyrirmyndardeildir og hafa endurnýjað viðurkenningar sínar reglulega samkvæmt fjögurra ára reglu þar um.