Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.02.2026 - 21.02.2026

Ársþing SÍL

Ársþing Siglingasambands Íslands (SÍL) verður...
1

GKG fyrirmyndarfélag ÍSÍ

15.04.2016Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ laugardaginn 9. apríl síðastliðinn.  Þann dag fékk félagið einnig afhenta nýja og glæsilega aðstöðu við Vífilsstaði í Garðabæ.  Það var Lárus Blöndal forseti ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Finni Sveinbjörnssyni viðurkenninguna.  Á myndinni eru frá vinstri þeir Lárus og Finnur ásamt ungum golfiðkendum í GKG með fána fyrirmyndarfélaga ÍSÍ.