Ólafur Oddur áfram formaður GLÍ
02.03.201652. ársþing Glímusambands Íslands var haldið laugardaginn 27.febrúar 2016 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ársþingið gekk vel fyrir sig og var mæting ágæt. Þingforseti var Kjartan Lárusson og þingritari var Jón M. Ívarsson. Ólafur Oddur Sigurðsson var endurkjörinn formaður Glímusambandsins og nýr inn í varastjórn var kjörinn Þórður Vilberg Guðmundsson. Umræður á þinginu voru góðar og mikill hugur í glímufólki fyrir komandi verkefnum. Ingi Þór Ágústsson stjórnarmaður ÍSÍ og Örn Guðnason varaformaður UMFÍ voru gestir þingsins.