Keppnisdagur að kvöldi kominn í Lillehammer
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Afreks-og-olympiusvid/2016-Lillehammer/Dagur_Sprettur.jpg?proc=400x400)
Keppni hófst snemma í morgun með tímatöku í sprettgöngu pilta, þar keppti Dagur Benediktsson. Dagur rann sprettinn á 3:19,32 sem var 36. besti tími undanrásanna. Þrjátíu bestu tímarnir tryggðu sæti í milliriðlum. Á fimmtudag er næsti keppnisdagur drengja þegar gengnir verða 10 kílómetrar.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir keppti í stórsvigi stúlkna fyrr í dag. Í fyrri ferðinni skíðaði Hólmfríður á 1:27,32 sem var 28 besti tíminn. Í seinni ferðinni féll Hólmfríður úr leik þegar hún missti af hliði.
Á morgun miðvikudag er komið að stórsvigi drengja.