Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Stjarnan fyrirmyndarfélag ÍSÍ

13.01.2016

Umf. Stjarnan í Garðabæ fékk endurnýjun fyrir deildir sínar sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ á viðburði þegar íþróttamaður Garðabæjar var kjörinn sunnudaginn 10. janúar síðastliðinn.  Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti fulltrúum deildanna og aðalstjórnar viðurkenningarnar.  Fulltrúar knattspyrnudeildar, handknattleiksdeildar, blakdeildar, körfuknattleiksdeildar, fimleikadeildar, sunddeildar og lyftingadeildar tóku við viðurkenningum sínum úr höndum Sigríðar en handbækur deildanna voru afar vel unnar og aðalstjórn hefur mótað skýrar stefnur í þeim málaflokkum sem kröfur eru gerðar til um.  Myndin er frá afhendingu viðurkenninga þessa efnis til Stjörnunnar 2010.