Völsungur fyrirmyndarfélag ÍSÍ
05.01.2016Íþróttafélagið Völsungur á Húsavík fékk viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ á viðburðinum "Íþróttafólk Völsungs" sem félagið var með á Húsavík 29. desember síðastliðinn. Allar 9 deildir Völsungs fengu viðurkenningu og þar með félagið í heild sinni. Félagið hafði unnið að þessu verkefni í nær tvö ár og vandað verulega til verksins. Viðar Sigurjónsson Skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sat nokkra vinnufundi með fulltrúum félagsins í aðdraganda þessara tímamóta. Það var svo Viðar sem afhenti formanni félagsins, Guðrúnu Kristinsdóttur ásamt fulltrúum allra deilda viðurkenningarnar ásamt fyrirmyndarfélagsfánum. Á myndunum eru fulltrúar allra deilda og aðalstjórnar ásamt Viðari og nokkrum ungum Völsungum.