Handknattleiksdeild Selfoss fyrirmyndardeild ÍSÍ
%20(00000002).jpg?proc=400x400)
Það var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem afhenti viðurkenninguna formanni deildarinnar Jóni Birgi Guðmundssyni. Á myndinni eru frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Elvar Örn sem var markahæstur í leiknum með 11 mörk, þá faðir hans Jón Birgir formaður handknattleiksdeildarinnar og loks faðir Jóns Birgis, Guðmundur Kr. Jónsson sem er formaður Ungmennafélags Selfoss. Þarna eru því þrír ættliðir saman komnir með Hafsteini.