Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
12

Dagur gegn einelti

09.11.2015

Dagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. Í ár verður dagurinn haldinn hátíðlegur í fimmta sinn mánudaginn 9. nóvember til að skólar geti nýtt virkan skóladag til að huga að þessu mikilvæga málefni. 

Í þjóðarsáttmála sem undirritaður var þann 8. nóvember 2011 segir: „Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er“. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands undirritaði á sínum tíma þennan sáttmála. 

Einelti og hvers kyns ofbeldi getur átt sér stað nánast hvar og hvenær sem er og þar af leiðandi einnig innan íþróttahreyfingarinnar.
Áhrifaríkasta tækið sem íþróttafélag hefur yfir að ráða gegn slíku eru iðkendurnir sjálfir. Þó að meirihluti þeirra eigi ekki beina aðild að einelti/ofbeldi veit þessi hópur oft af slíku löngu áður en hinir fullorðnu fá vitneskju um það. Mikilvægt er að íþróttafélaginu takist að virkja þennan hóp „hlutlausra áhorfenda” til að taka afstöðu gegn einelti/ofbeldi í verki og tilkynna til forráðamanna íþróttafélags eða starfsfólks íþróttamannvirkisins ef þeir verða varir við eða vitni að slíku. Mikilvægt er að trúnaður ríki milli barna og fullorðinna og að nafnleynd sé virt. Æskilegt væri að veita starfsfólki íþróttafélagsins þjálfun í að þekkja einkenni eineltis/ofbeldis.

Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands gaf út bækling árið 2013 sem ber heitið Aðgerðaráætlun gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun en þar má finna upplýsingar um fyrirbyggjandi aðgerðir, skilgreiningu og helstu birtingarmyndir eineltis. Bæklinginn er hægt að nálgast hér á heimasíðunni eða í prentuðu formi á skrifstofunni.