Ingigerður endurkjörin formaður ÍRB
29.06.2015Ársþing Íþróttabandalags Reykjanesbæjar var haldið 23. júní í fundarsal íþróttaakademíunnar í Reykjanesbæ. Þingfulltrúar voru 23 frá 5 af 9 aðildarfélögum IRB. Ingigerður Sæmundsdóttir formaður IRB setti þingið og bauð þingfulltrúa og gesti velkomna. Formaður flutti skýrslu stjórnar og gjaldkeri sambandsins endurskoðaða reikninga þess.
Tillaga um breytingu á reglugerð vegna tilnefninga á íþróttafólki ársins í Reykjanesbæ var samþykkt, en breytingin felur í sér að framvegis verði bæði íþróttakona og íþróttakarl ársins tilnefnd. Hliðstætt mun einnig gilda um íþróttafólk sérgreina á sambandssvæðinu. Ingigerður var endurkosin formaður næsta starfsárs. Fulltrúi ÍSÍ var Sigríður Jónsdóttir og ávarpaði hún þingfulltrúa og flutti kveðjur frá forseta og framkvæmdastjórn.