Evrópuleikar í Bakú
Í nótt komu síðustu íslensku keppendurnir til Bakú þegar Sveinbjörn Iura keppandi í júdó og Þorbjörg Ágústsdóttir keppandi í skylmingum mættu til Bakú. Keppendur í sundi og badminton höfðu komið síðustu dagana þar á undan, enda er keppni í þessum fjórum íþróttagreinum á dagskrá síðustu viku leikanna. Við sama tækifæri hélt stór hópur heimleiðis, en í nótt yfirgáfu þorpið keppendur í fimleikum og skotfimi.
Keppni í badminton hófst í morgun og átti Sara Högnadóttir einn af fyrstu leikjum mótsins. Keppti hún þar við Fiorella Marie Sadowski frá Möltu og sigraði hana í tveimur lotum, 21-17 og 21-13. Kári Gunnarsson keppir síðar í dag við Vladimir Malkov frá Rússlandi, en í þessu móti er keppt í fjögurra manna riðlum þar sem tveir úr hverjum riðli komast áfram í 16 manna úrslit. Sara og Kári keppa síðan aftur á morgun og á miðvikudag og kemur þá í ljós hvort að þau komist áfram í mótinu.
Hægt er að fylgjast með keppni í badminton hér og keppni íslenska hópsins hér.
Á morgun þriðjudag hefst keppni í sundi á Evrópuleikunum, en Ísland á fimm sundmenn á leikunum sem keppa munu næstu daga.