Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 13. júní
![](/library/Myndir/Frettamyndir/11329816_10152878403745794_7807811386145727629_n.jpg?proc=400x400)
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 13. júní næstkomandi.Eins og undanfarin ár verður hlaupið í Garðabæ og Mosfellsbæ ásamt yfir 100 öðrum stöðum hérlendis og erlendis.
Þátttökugjald er 1.500 kr. og 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri en innifalið í gjaldinu er Kvennahlaupsbolurinn og verðlaunapeningur. Bolurinn í ár er fallega fjólublár eins og sjá má á lit auglýsingarinnar sem fylgir hér í fréttinni.
Hreyfing er lykillinn að góðri heilsu og nærir líkama og sál. Við hvetjum allar konur til að mæta í Kvennahlaupið og njóta þess að hreyfa sig, hver á sínum hraða og forsendum.
Koma svo!