Óbreytt skipan embættismanna framkvæmdastjórnar ÍSÍ
11.05.2015
Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ 6. maí síðastliðinn var skipaði í embætti framkvæmdastjórnar ÍSÍ fyrir kjörtímabilið 2015-2017.
Samþykkt var samhjóða að skipa Helgu Steinunni Guðmundsdóttur í embætti varaforseta, Gunnar Bragason í embætti gjaldkera stjórnar og Sigríði Jónsdóttur í embætti ritara stjórnar.
Á sama fundi var skipað í sviðsráðin þrjú og einnig í helstu nefndir og ráð ÍSÍ.