Hjólað í vinnunna ræst formlega í morgun.
06.05.2015
Hjólað í vinnuna hófst formlega í morgunblíðunni í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum í morgun. Hafsteinn Pálsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi í Reykjavík ávörpuðu gesti og hjóluðu verkefnið síðan af stað. Léttar veitingar voru í boði Fjölskyldu- og Húsdýragarðsin og DR. Bæk var á staðnum með smurolíubrúsann á lofti að lagfæra hjól.
Hér má nálgast myndir frá opnunarhátíðinni.