Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

200 dagar til stefnu

13.11.2014

Í dag eru 200 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir á Íslandi. Leikarnir munu fara fram dagana 1. til 6. júní 2015 í Reykjavík. Að því tilefni eru tvær nýjar myndir úr myndaröðinni „Náttúrulegur kraftur“ birtar til viðbótar við þær sjö sem nú þegar hafa verið birtar, ásamt persónulegum viðtölum við íþróttafólkið á myndunum. Viðtölin má sjá á heimasíðu Smáþjóðaleikanna 2015 www.iceland2015.is undir „Náttúrulegur kraftur“. Einnig verður hægt að fylgjast með íþróttafólkinu í gegnum samskiptamiðlana Facebook, Instagram og Twitter.


Myndirnar sem urðu fyrir valinu til birtingar þegar að 200 dagar eru til leika sýna Róbert Karl Hlöðversson blakmann spila blak við Dynjanda á Vestfjörðum og Kolfinnu Bergþóru Bjarnadóttur borðtenniskonu spila borðtennis á Fimmvörðuhálsi við hlið Eyjafjallajökuls.

Síðustu tvær myndirnar úr myndaröðinni Náttúrulegur kraftur verða birtar þegar að 100 dagar eru í leika, ásamt umfjöllun um íþróttafólkið á myndunum. Mikil spenna ríkir fyrir myndunum, hverjir sitja fyrir og hvaða íslensku náttúrufyrirbæri ber fyrir sjónir, enda einstaklega fallegar myndir.

Heimasíða leikanna er www.iceland2015.is

Facebook-síða leikanna er www.facebook.com/gsse2015

#GSSE2015 #Smáþjóðaleikarnir2015

Myndir með frétt