Þjálfaranámskeið ÍF fyrir aðila sem vinna með fötluðu sundfólki
 26.09.2014Þjálfaranámskeið ÍF fyrir aðila sem vinna með fötluðu sundfólki fer fram í fundarsal E á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal þann 11. október næstkomandi frá kl. 9 - 13.
26.09.2014Þjálfaranámskeið ÍF fyrir aðila sem vinna með fötluðu sundfólki fer fram í fundarsal E á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal þann 11. október næstkomandi frá kl. 9 - 13. Meðal annars mun hollenskur fyrirlesari, Mark Faber, tala um hollenska fyrirkomulagið.
Skráning fer fram á if@isisport.is og lýkur miðvikudaginn 8. október nk.
Þátttökugjald í námskeiðinu er kr. 2500.
Námskeiðið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á málefninu. Mestöll dagskráin verður miðuð að þjálfurum. Hluti námskeiðsins mun fara fram á ensku. Hægt verður að bera fram spurningar á íslensku. Samantekt verður einnig aðgengileg á íslensku.
Dagskrá
Laugardagur 11. október
9:00-9:15        Móttaka og kynning                                                                                Ingi Þór og ÍF
9:15-10:15         Hollenska fyrirkomulagið (blöndun eða sér klúbbar)                                Mark Faber
10:15-10:45        Kaffihlé
10:45-11:45        Líkan fyrir sundklúbba fatlaðra frá byrjendum til afrekshópa                    Helena
11:45-13:00         Hádegishlé
13:00-14:00         Hvernig fáum við fleiri fötluð börn til að æfa                                                Allir
14:00-15:00         Að þjálfa CP-sundmann, frá byrjanda til afreksmanns                                Tomas Hajeck
15:00-15:30          Kaffihlé
15:30-16:30          Sértækar aðgerðir í tækni og þjálfun fatlaðra                                             Ingi og Mark
16:30-17:00          Flokkun með „berum augum“
Sunnudagur 12. október
12:30-14:00        Að þekkja hæfileika (fer fram á Erlingsmótinu)                                             Ingi og Mark
