USAH heimsótt
17.09.2014
ÍSÍ hlaut góðar móttökur í heimsókn sinni í Austur-Húnavatnssýslu þegar fundað var með fulltrúum Ungmennasambands A-Húnvetninga (USAH) í húsi Samstöðu á Blönduósi, sunnudaginn 14. september. Þórhalla Guðbjartsdóttir gjaldkeri, Sigrún Líndal ritari og Guðrún Sigurjónsdóttir úr stjórn USAH skýrðu frá því helsta úr starfi sambandsins og aðildarfélaga þess. Í kjölfar fundar var farið um svæðið og helstu íþróttamannvirki skoðuð.