Fróðlegur fundur á Siglufirði
17.09.2014
ÍSÍ átti fund með Guðnýju Helgadóttur formanni Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar (UÍF) og forsvarsmönnum íþróttahreyfingarinnar á Siglufirði og í Ólafsfirði síðastliðið laugardagskvöld að Íþróttamiðstöðinni Hóli á Siglufirði. Gefin var skýrsla um starfsemi allra aðildarfélaga UÍF og það helsta úr starfsemi sambandsins. Fengu gestirnir góða yfirsýn yfir starfið í héraði og helstu hagsmunamál sem brenna á hreyfingunni.
Áður en fundur hófst var Guðný með leiðsögn um íþróttamannvirki, bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði, allt frá fjöru til fjalla.