ÍSÍ á Djúpavogi
13.09.2014
Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og föruneyti héldu ferð sinni um landið áfram í dag. Heimsóttu þau fyrst Djúpavog þar sem Andrés Skúlason oddviti og forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar og Jóhanna Reykjalín framkvæmdastjóri Umf. Neista gáfu greinargóða skýrslu um íþróttastarfið á Djúpavogi og leiddu skoðun um íþróttamannvirkin á staðnum. Eru þau hér á meðfylgjandi mynd ásamt forseta og framkvæmdastjóra ÍSÍ og Viðari Sigurjónssyni skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri. Á Djúpavogi er blómlegt íþróttalíf undir starfsemi Umf. Neista en félagið fagnaði 95 ára afmælis sínu um síðastliðna helgi.