Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14.04.2026 - 14.04.2026

Ársþing ÍA 2026

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
14

Forseti ÍSÍ heimsækir íþróttahéruð

10.09.2014

Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ hefja á morgun ferð sína í 10 íþróttahéruð á Suður-, Austur- og Norðurlandi.  Tilgangur ferðarinnar er að fræðast um það viðamikla íþróttastarf sem fram fer í íþróttahéruðunum og eiga spjall um það helsta sem brennur á íþróttahreyfingunni á hverjum stað fyrir sig.  Fundað verður með USVS, USÚ, UÍA, HSÞ, ÍBA, UMSE, ÚÍF, UMSS, USAH og USVH.  Auk þess munu forseti og framkvæmdastjóri skoða íþróttamannvirki í þéttbýliskjörnum á þessum svæðum og eiga spjall við forsvarsmenn félaga þar sem því verður við komið.

Á næstu mánuðum er fyrirhugað að sækja heim þau héruð sem ekki næst að heimsækja í þessari ferð.