Sunneva synti 800m. skriðsund í dag
19.08.2014
Sunneva Dögg Friðriksdóttir synti í fyrsta sinn á Ólympíuleikum ungmenna í dag. Hún keppti þá í 800m. skriðsundi og var á tímanum 9:28.60, eða 29.90sek. á eftir sigurvegaranum í riðlinum, Valerie Gruest frá Guatemala. Sunneva endaði áttunda í sínum riðli af átta sundmönnum.
Sunneva keppir næst þann 22. ágúst í 400m. skriðsundi.