Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Kvennahlaupið 25 ára í dag

30.06.2014

Í dag, 30. júní 2014, eru 25 ár liðin frá því að fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ fór fram. Hlaupið var haldið 30. júní 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ og tóku um 2.500 konur þátt í Garðabæ og á sjö stöðum á landsbyggðinni.

Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari var einn af frumkvöðlum Kvennahlaupsins og var hún í lykilhlutverki við stofnun hlaupsins árið 1990 og síðar framkvæmd þess.

Í dag er Kvennahlaupið einn útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert.  Um 15.000 konur tóku þátt á 105 stöðum hérlendis sem erlendis í 25 ára afmælishlaupinu sem fram fór laugardaginn 14. júní síðastliðinn.