Íþróttafélagið Nes Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
24.06.2014Íþróttafélagið Nes fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á lokahófi félagsins 10. júní síðastliðinn. Íþróttafélagið Nes fékk fyrst viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ árið 2004 og er þetta því í annað sinn sem félagið fær endurnýjun þeirrar viðurkenninar. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni félagsins Guðmundi Sigurðssyni viðurkenninguna. Á myndinni eru þau Guðmundur og Sigríður með fána Fyrirmyndarfélaga.