Hannes kjörinn í stjórn FIBA Europe
20.05.2014Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, var kjörinn í stjórn FIBA-Europe, Evrópska körfuknattleikssambandsins á ársþingi sambandsins síðastliðna helgi. Til stjórnar FIBA Europe voru í framboði 35 einstaklingar um 23 sæti í stjórn sambandsins.
Tyrkinn Turgay Demirel var kjörinn forseti FIBA-Europe og hlaut 40 atkvæði af 50.
Tyrkinn Turgay Demirel var kjörinn forseti FIBA-Europe og hlaut 40 atkvæði af 50.
ÍSÍ óskar Hannesi til hamingju með kjörið en það er afar mikilvægt fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi að eiga fulltrúa í stjórnum og ráðum alþjóðasambanda.