Hestamannafélagið Hörður Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
30.04.2014Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl síðastliðinn. Um var að ræða endurnýjun viðurkenningarinnar en félagið útskrifaðist fyrst sem Fyrirmyndarfélag árið 2008. Þennan dag var félagið með hinn ágæta viðburð Lífstöltið sem í raun er söfnunarátak fyrir kvennadeild Landsspítalans. Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og jafnframt formaður Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sem afhenti viðurkenninguna. Á myndinni eru þær Sigríður Jónsdóttir og Jóna Dís Bragadóttir formaður Hestamannafélagsins Harðar.