Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Gróska í starfi HHF

09.04.2014

Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka var haldið í Félagsheimili Patreksfjarðar þann 1.apríl s.l.  Vel var mætt og voru ýmis mál tekin fyrir.  Mótaskrá sumarsins var samþykkt auk þess sem reglugerðir um lottóskiptingu og val á íþróttamanni ársins voru endurskoðaðar. Birna Friðbjört Hannesdóttir var ráðin sem framkvæmdarstjóri HHF í sumar og mun hún einnig sjá um þjálfun í frjálsum íþróttum á öllu svæðinu.

Rætt var um stefnumótun í íþrótta- og æskulýðsmála á sunnanverðum Vestfjörðum en mikil uppbygging hefur verið í gangi seinustu ár hjá HHF og aðildafélögum þess. 


Engin breyting varð á aðalstjórn HHF en stjórnina skipa Lilja Sigurðardóttir formaður, Sædís Eiríksdóttir meðstjórnandi og Birna Friðbjört Hannesdóttir meðstjórnandi. Ein breyting varð á varastjórn en Ólafur Byron Kristjánsson kom inn í stað Guðnýjar Sigurðardóttur. Varastjórn skipa nú Heiðar Jóhannsson, Kristrún A. Guðjónsdóttir og Ólafur Byron Kristjánsson.