ÍSÍ endurnýjar þjónustusamning við Vodafone
24.02.2014
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur endurnýjað þjónustusamning sinn við Vodafone. Við það tækifæri fékk framkvæmdastjóri ÍSÍ einnig afhenta síma sem Vodafone og Tæknivörur (Samsung) létu ÍSÍ í té til að nota í verkefnum ÍSÍ.
Myndin var tekin við afhendingu símanna en á henni eru Sigursteinn Arndal frá Vodafone og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ.