Lúðvík Georgsson heiðraður á ársþingi KSÍ
![](/library/Myndir/Frettamyndir/d84b465c-f26e-4336-8c85-2ffb026a1420_L%20(640x640).jpg?proc=400x400)
Á ársþingi KSÍ í Hofi á Akureyri um síðastliðna helgi var Lúðvík Georgsson sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ fyrir frábær störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var Hafsteinn Pálsson, formaður Heiðursráðs ÍSÍ, sem sæmdi Lúðvík krossinum.
Lúðvík hefur verið ötull liðsmaður knattspyrnuhreyfingarinnar í áratugi. Hann tók sæti í stjórn KSÍ árið 1996 en gaf ekki kost að sér til endurkjörs að þessu sinni.