Gunnar endurkjörinn formaður ÍS
18.02.2014
Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja var haldið í aðstöðu Knattspyrnufélagsins
Víðis í Garðinum þann 17. febrúar 2014. Þingið var vel sótt af sambandsaðilum
og stjórnað örugglega af þeim Gunnari Jóhannssyni, formanni, og Halldóri
Smárasyni.
Gunnar var endurkjörin formaður og ný stjórn var kosin, þau: Halldór Smárason
(Golfklúbbi Grindavíkur) og Árni Sigurpálsson (Reyni Sandgerði) til eins árs og
til tveggja ára þau: Tinna Hallgrímsdóttir (Ungmennafélaginu Þrótti) og Jón
Ragnar Ástþórsson (Víði í Garði).
Fulltrúi ÍSÍ var Friðrik Einarssonar úr framkvæmdastjórn ÍSÍ.