Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Sochi 2014 – Ráðherra heimsækir Ólympíuþorpið

09.02.2014Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson, ásamt forseta Íslands og föruneyti hans hófu daginn í fjöllunum í dag.  Hófst dagurinn á því að fylgjast með keppni í bruni karla og í framhaldinu var komið við í „fjallaþorpinu“ (Mountain Village) en þar búa keppendur í alpagreinum.  Hópurinn hitti þar íslensku þátttakendurna og snæddi með þeim hádegisverð auk þess sem að þorpið var skoðað betur.  Austurríkismenn höfðu unnið gull í bruni karla fyrr um morguninn og hitti mennta- og menningarmálaráðherra m.a. forsætisráðherra og íþróttamálaráðherra Austurríkis í Ólympíuþorpinu.

Ráðherra hafði orð á því hversu glæsilega keppendur Ísland ætti á leikunum, þau væru heilsteypt og flottar fyrirmyndir.  Íþróttafólkinu og íslenska hópnum fannst líka ánægjulegt að fá heimsókn íslenskra ráðamanna til Ólympíuþorpsins, og sjá þannig stuðning þeirra í verki gagnvart íþróttum og þátttöku íslenskra íþróttamanna á Ólympíuleikum.

Á myndinni má sjá ráðherra ásamt Lárusi L. Blöndal, forseta ÍSÍ og keppendum Íslands í alpagreinum.