Jón Finnbogason sæmdur Silfurmerki ÍSÍ
06.02.2014
Jón Finnbogason fyrrverandi formaður Fimleikafélagsins Gerplu var í gær sæmdur Silfurmerki ÍSÍ fyrir störf sín í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var Gunnar Bragason sem afhenti Jóni heiðursviðurkenninguna á uppskeruhátíð Gerplu sem fram fór í aðstöðu félagsins að Versölum 3 í Kópavogi. Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri, Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ og Jón Finnbogason, sem hlaut einnig viðurkenningu frá Gerplu við þetta tækifæri.