Íþróttamaður ársins 2013
28.12.2013
Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands halda sameinginlegt hóf í tengslum við kjör Íþróttamanns ársins 2013. Hófið verður haldið í Gullhömrum, Grafarvogi, Reykjavík, laugardaginn 28. desember 2013 og hefst kl. 18:00.
Dagskráin samanstendur af afhendingu viðurkenninga ÍSÍ til íþróttamanna/-íþróttakvenna sérgreina íþrótta og útsendingu Sjónvarpsins þar sem kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2013 verður lýst.
Í annað sinn munu Samtök íþróttafréttamanna tilnefna þjálfara ársins og lið ársins en frekari upplýsingar um þá sem tilnefndir eru er hægt að nálgast á heimasíðu samtakanna.