Tvær deildir Íþróttafélagsins Hattar Fyrirmyndardeildir ÍSÍ
10.12.2013Tvær deildir Íþróttafélagsins Hattar fengu endurnýjun viðurkenninga frá ÍSÍ sem Fyrirmyndardeildir á Jólamóti fimleikadeildarinnar í íþróttahúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 7. desember síðastliðinn. Það var mikið um dýrðir í íþróttahúsinu og fimleikaiðkendur fóru á kostum. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti fulltrúum deildanna viðurkenningarnar og fána Fyrirmyndarfélaga. Ungir iðkendur frá báðum deildum voru viðstaddir afhendinguna og settu skemmtilegan svip á hana.