FSÍ með tvo fulltrúa í tækninefndum UEG
09.12.2013
Ársþing Fimleikasambands Evrópu (UEG) fór fram helgina 6.-7. desember í Portoroz í Slóveníu. Á þinginu kynntu fulltrúar Fimleikasambands Íslands Evrópumótið í hópfimleikum sem fer fram í Reykjavík 17.-23. október 2014. Fimleikasambandið var með tvo fulltrúa í framboði til tækninefnda og náðu þeir báðir kjöri. Hlíf Þorgeirsdóttir var endurkjörin með glæsibrag sem meðlimur í sjö manna tækninefnd fimleika fyrir alla og Sólveig Jónsdóttir fékk frábæra kosningu í fimm manna tækninefnd í hópfimleikum.
Það er mikill heiður fyrir Fimleikasamband Íslands að eiga tvo fulltrúa í tækninefndum Fimleikasambands Evrópu og viðurkenning á því starfi sem innt er af hendi í fimleikahreyfingunni á Íslandi.