Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

13.05.2025 - 13.05.2025

Ársþing ÍBV 2025

Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja (ÍBV)...
9

Sigurður Valur endurkjörinn formaður BTÍ

06.11.2013

Ársþing Borðtennissambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 28. október sl.  Sigurður Valur Sverrisson var endurkjörinn formaður sambandsins en með honum í stjórn voru kjörnir þeir Ingimar Ingimarsson, Hlöðver Hlöðversson, Pétur Tómasson og Tryggvi Áki Guðmundsson.  Í varastjórn voru kjörnir Halldór Haralz, Pétur Stephensen og Tómas Sheldon.  Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ var fulltrúi ÍSÍ á þinginu en hann var einnig í embætti þingforseta þar.