Erlendar ráðstefnur um afreksíþróttir
Á hverju ári fara fram fjölmargar ráðstefnur sem tengjast íþróttum.
Olympiatoppen í Noregi, sem er afreksíþróttahluti Íþróttasambands og ólympíunefndar Noregs heldur hina árlegu ráðstefnu sína sem ber titilinn "Olympiatoppens Forskningskonferanse" miðvikudaginn 10. október nk. Skemmtileg dagskrá er í boði og er þátttaka ókeypis. Skráningarfrestur er til 2. októbers nk.
Frekari upplýsingar um dagskrá og skráningu er á síðunni http://www.olympiatoppen.no/fagomraader/fou/forskningskonferanse/page7724.html sem og efni frá fyrri árum.
Dagana 13.- 14. nóvember nk. fer fram SPLISS ráðstefna í Antwerpen í Belgíu. Ráðstefnan ber heitið "SPLISS Conference Elite Sport Success: society boost or not?"
Frekari upplýsingar um SPLISS og ráðstefnuna eru á síðunni http://www.elitesportconference.com