Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14.04.2026 - 14.04.2026

Ársþing ÍA 2026

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
13

Fánaberi Íslands á EYOF 2013

14.07.2013

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni fer Setningarhátíð Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fram kl. 20:00 í kvöld á Galgenwaard Stadium í Utrecht í Hollandi.

Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir, keppandi í fimleikum, hefur verið valin sem fánaberi Íslands á leikunum. Sigríður Hrönn er fædd 1998 og hefur meðal annars náð þeim árangri að hljóta bronsverðlaun á Norðurlandamóti unglinga.