Breytingar á stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Mynd-2011%20(88%20of%20112).jpg?proc=400x400)
Við fráfall Ólafs E. Rafnssonar forseta ÍSÍ 19. júní sl. tók Lárus L. Blöndal varaforseti ÍSÍ við embætti forseta ÍSÍ, eins og lög ÍSÍ kveða á um.
Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í gær var síðan endurskipað í embætti stjórnar sambandsins. Helga Steinunn Guðmundsdóttir var skipuð í embætti varaforseta og Sigríður Jónsdóttir í embætti ritara. Gunnar Bragason verður eftir sem áður gjaldkeri ÍSÍ.