Ásta Laufey og Ólafur Elí heiðruð á þingi HSK
13.03.2013
Á ársþingi HSK síðastliðinn laugardag voru hjónin Ásta Laufey Sigurðardóttir og Ólafur Elí Magnússon heiðruð með Silfurmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Þau hjón hafa um árabil verið helstu burðarásar í kröftugu starfi Íþróttafélagsins Dímonar í Rangárþingi eystra. Þau hafa bæði átt sæti í nefndum hjá HSK á undanförnum árum og Ásta í varastjórn HSK.
Á myndinni, sem tekin er við þetta tækifæri, eru frá vinstri Jón Gestur Viggósson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, Ásta Laufey Sigurðardóttir og Ólafur Elí Magnússon.